Fotbolti.net
17.06.23 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Bakayoko farinn frá Chelsea (Staðfest)

Bakayoko farinn frá Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franski miðjumaðurinn Timeoue Bakayoko er farinn frá Chelsea en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Chelsea keypti Bakayoko frá Mónakó árið 2017 eftir að liðið komst alla leið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.

Hann kostaði Chelsea 40 milljónir punda en tókst aldrei að standast þær væntingar sem gerðar voru til hans.

Bakayoko var lánaður til Milan, Mónakó og Napoli áður en hann var lánaður í annað sinn til Milan á síðustu leiktíð.

Samningur hans við Chelsea rennur út um mánaðarmótin en félagið hefur staðfest að hann yfirgefur félagið þá.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.