Fotbolti.net
16.06.23 - 23:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kristófer yfirgefur Venlo (Staðfest)

Kristófer yfirgefur Venlo (Staðfest)
Canon

Mynd: VVV Venlo

Kristófer Ingi Kristinsson hefur yfirgefið hollenska félagið VVV Venlo. Kristófer gekk í raðir félagsins frá SönderjyskE síðasta haust og skrifaði undir eins árs samning.

Kristófer er 24 ára sóknarsinnaður leikmaður sem hefur leikið erlendis undanfarin sex ár. Hann gekk fyrst í raðir Willem II í Hollandi en hefur einnig leikið með Grenoble og Jong PSV á sínum ferli ásamt fyrrgreindum liðum.
„Ég er núna að skoða bara hvað sé mest spennandi í stöðunni," sagði Kristófer við Fótbolta.net.

Hann er uppalinn í Stjörnunni og á að baki á fjórða tug leikja fyrir yngri landsliðin.

Í vetur byrjaði hann fimm leiki og kom inn á í þrettán í hollensku B-deildinni. Venlo fór í umspilið um sæti í efstu deild en tapaði í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.