Man Utd missir tvo af sínum bestu leikmönnum (Staðfest)

Ona Batlle er búin að semja við Barcelona.

Mynd: EPA

Bakvörðurinn Ona Batlle hefur gengið frá samningi við Evrópumeistara Barcelona og mun leika þar á næstu leiktíð.
Hún kemur til Katalóníustórveldisins frá Manchester United þar sem hún hefur leikið síðastliðin þrjú ár.

Hún lék afar vel með Man Utd á síðustu leiktíð og hjálpaði liðinu að berjast um enska meistaratitilinn, en liðið endaði að lokum í öðru sæti. Batlle var ein af þeim leikmönnum sem kom til greina í valinu á leikmanni ársins á Englandi.
Batlle er sóknarsinnaður hægri bakvörður en hún er búin að gera samkomulag um að leika með Barcelona á næsta tímabili, en Börsungar eru með besta lið Spánar og besta lið Evrópu.
Batlle, sem er 23 ára gömul og á 28 A-landsleiki fyrir Spán, er ekki eini lykilmaðurinn sem er að yfirgefa Man Utd í sumar. Enska landsliðskonan Alessia Russo er að renna út á samningi og hefur hún verið sterklega orðuð við Arsenal. Það er staðfest að hún verði ekki áfram hjá Rauðu djöflunum.
Það er talað um það að í enskum fjölmiðlum að Man Utd hafi ekki verið með hraðar hendur í samningaviðræðunum við leikmennina. Man Utd er með tiltölulega nýtt lið í kvennaboltanum og er enn í eltingaleik við önnur félög varðandi það sem gerist á bak við tjöldin.

Alessia Russo er líklega að fara í Arsenal.

Mynd: Getty Images