Monchi ráðinn forseti fótboltamála hjá Aston Villa (Staðfest)

Monchi er kominn í nýtt starf hjá Aston Villa

Mynd: Getty Images

Ramón Rodríguez Verdejo eða Monchi eins og hann er yfirleitt kallaður er nýr forseti fótboltamála hjá Aston Villa. Enska félagið staðfesti þetta með tilkynningu í kvöld.
Monchi starfaði áður hjá Sevilla og Roma en hann sagði starfi sínu hjá Sevilla lausu á dögunum.
Christian Purslow, stjórnarformaður Villa, hætti á dögunum og var Monchi ráðinn inn í hans stað en mun gegna öðruvísi hlutverki og fær titilinn forseti fótboltamála.
Þar mun hann koma að öllum aðgerðum sem tengjast fótboltamálum hjá félaginu. Hann mun einnig starfa náið með þeim Nassef Sawiris og Wes Edens, eigendum Villa.
Monchi og Unai Emery, þjálfari Villa, hafa áður starfað saman hjá Sevilla og unnið fjölmarga titla.
Aston Villa er þarna að fá reyndan mann sem hefur fundið leikmenn á borð við Dani Alves, Julio Baptista, Ivan Rakitic, Sergio Ramos, Jesus Navas og Jose Antonio Reyes.
Damian Vidagany verður yfirmaður fótboltamála og mun því vinna með Monchi og Emery.