Gary O'Neil óvænt rekinn frá Bournemouth (Staðfest)

Gary O'Neil.

Mynd: EPA

Gary O'Neil.

Mynd: EPA
Bournemouth hefur óvænt tekið þá ákvörðun að reka stjórann Gary O'Neil úr starfi.
Félagið greinir frá þessari ákvörðun sinni í tilkynningu í dag.

O'Neil tók við Bournemouth snemma á nýafstöðnu tímabili eftir að Scott Parker var rekinn. O'Neil tók fyrst við til bráðabirgða en skrifaði svo undir samning eftir að hafa gert flotta hluti.
Þegar upp var staðið þá var hann einn af stjórum tímabilsins en hann bjargaði Bournemouth á endanum örugglega frá falli.
Bill Foley, eigandi Bournemouth, segir að þessi breyting sé gerð með hagsmuni félagsins að leiðarljósi og telur hann að hún muni hjálpa félaginu að byggja fyrir framtíðina.
„Ég vil þakka Gary fyrir hans framlag og óska honum alls hins besta fyrir framtíðina," segir Foley.