Joselu til Real Madrid (Staðfest)

Marki fagnað með spænska landsliðinu.

Mynd: EPA

Marki fagnað með spænska landsliðinu.

Mynd: EPA
Real Madrid hefur náð samkomulagi við Espanyol um að fá sóknarmanninn Joselu á eins árs lánssamningi. Real hefur svo möguleika á því að kaupa Joselu í lok lánssamningsins.
Joselu hefur áður verið hjá Real því hann lék með varaliði félagsins í tvö ár eftir að hann varð tvítugur og lék sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið árið 2011. Eftir það hélt hann til Þýskalands, lék svo með Stoke og Newcastle á Englandi áður en hann sneri aftur til Spánar sumarið 2019.

Á nýliðinni leiktíð skoraði hann sautján mörk fyrir Espanyol og spilaði sig í spænska landsliðið. Hann var hluti af spænska liðinu sem vann Þjóðadeildina í gær; kom inn á fyrir Alvaro Morata í seinni hálfleik.
Joselu er 33 ára gamall, er fæddur í Þýskalandi en flutti til Spánar þegar hann var níu ára gamall. Samkvæmt heimildum The Athletic getur Real keypt Joselu á eina og hálfa milljón evra næsta sumar. Espanyol féll úr La Liga á tímabilinu sem líklega útskýrir hvers vegna félagið var tilbúið að lána Joselu í burtu.