Napoli gengur frá kaupum á Simeone (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Það var margt óljóst í kringum félagsskipti Giovanni Simeone frá Verona til Napoli síðasta sumar. Napoli borgaði 3,5 milljónir evra til að fá Simeone á eins árs lánssamningi.
Napoli gat borgað 12 milljónir í viðbót til að ganga frá kaupum á Simeone, en óljóst er hvort það hafi verið kaupskylda, kaupmöguleiki eða kaupskylda með skilyrðum.
Flestir miðlar á Ítalíu voru sammála um að Napoli væri með 12 milljón evru kaupskyldu, en þegar tók að líða á síðustu leiktíð voru margir fréttamenn komnir með aðra skoðun á málinu.
Núna skipta þær skoðanir þó engu máli, vegna þess að Napoli er búið að staðfesta kaup á Simeone.
Simeone, sem verður 28 ára í sumar, kom við sögu í 33 leikjum og skoraði 9 mörk á sínu fyrsta tímabili hjá Napoli. Hann var sérstaklega öflugur í Meistaradeild Evrópu þar sem hann setti fjögur í sjö leikjum.
Samkvæmt flestum fjölmiðlum er Simeone samningsbundinn Napoli til 2026 með möguleika á eins árs framlengingu.
The Guardian heldur því hins vegar fram að Simeone sé aðeins búinn að gera tveggja ára samning við Napoli, til 2025.


Mynd: Getty Images



