Rodgers aftur orðinn stjóri Celtic (Staðfest)

Rodgers á góðri stundu á fyrri stjóratíð sinni hjá Celtic.

Mynd: Getty Images

Rodgers á góðri stundu á fyrri stjóratíð sinni hjá Celtic.

Mynd: Getty Images
Celtic hefur staðfest að Brendan Rodgers sé aftur orðinn stjóri liðsins, fjórum árum og fjórum mánuðum eftir að hann hætti hjá félaginu til að taka við Leicester.
Rodgers tekur við Skotlandsmeisturum Celtic af Ange Postecoglou sem er orðinn stjóri Tottenham. Rodgers var rekinn frá Leicester í apríl.
Rodgers tekur við Skotlandsmeisturum Celtic af Ange Postecoglou sem er orðinn stjóri Tottenham. Rodgers var rekinn frá Leicester í apríl.
Rodgers stýrði Celtic áður milli 2016 og 2019 og vann skosku þrennuna tvö tímabil í röð.
Hann var fjögur ár með Leicester þar sem hápunkturin var sigur í FA-bikarnum.
Hann var rekinn frá félaginu þegar liðið fór niður í fallsæti en liðið fór á endanum niður í Championship-deildina.
Hann var fjögur ár með Leicester þar sem hápunkturin var sigur í FA-bikarnum.
Hann var rekinn frá félaginu þegar liðið fór niður í fallsæti en liðið fór á endanum niður í Championship-deildina.
Welcome back, Brendan! ????#CelticFC is delighted to announce that Brendan Rodgers has been appointed the Club's new Football Manager on a three-year contract.
— Celtic Football Club (@CelticFC) June 19, 2023
Let's get to work! ????



