Fotbolti.net
20.06.23 - 09:51
Elvar Geir Magnússon

Nkunku orðinn leikmaður Chelsea (Staðfest)

Nkunku í landsleik á dögunum.

Nkunku í landsleik á dögunum.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur tilkynnt um kaup á franska landsliðssóknarmanninum Christopher Nkunku frá þýska félaginu RB Leipzig fyrir 52 milljónir punda. Þessi 25 ára leikmaður skoraði 16 mörk í 25 leikjum í Bundesligunni á síðasta tímabili.
Nkunku hefur leikið tíu landsleiki fyrir Frakkland og er fyrstu kaup Chelsea síðan Mauricio Pochettino tók við stjórnartaumunum.

„Ég er ákaflega ánægður með að vera kominn til Chelsea. Félagið lagði mikla áherslu og mikla vinnu í að fá mig. Þetta er spennandi áskorun og ég mun stoltur klæðast treyju Chelsea," segir Nkunku.

„Ég er búinn að spila í frönsku deildinni og þýsku, nú vil ég spila í ensku úrvalsdeildinni; einni sterkustu deild heims."

Nkunku var í fjögur ár hjá Paris St-Germain áður en hann gekk í raðir Leipzig 2019. Hann var valinn leikmaður ársins í þýsku deildinni tímabilið 2021/22 þegar hann skoraði 20 mörk og átti 15 stoðsendingar í deildinni.

Hann lék sinn fyrsta landsleik fyrir Frakkland í fyrra en missti af HM vegna meiðsla.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.