Slaven Bilic tekur við Al-Fateh (Staðfest)
Króatíski þjálfarinn Slaven Bilic hefur verið ráðinn nýr þjálfari Al-Fateh í Sádi-Arabíu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25177 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Króatíski þjálfarinn Slaven Bilic hefur verið ráðinn nýr þjálfari Al-Fateh í Sádi-Arabíu.

Ítalska félagið Atalanta er búið að krækja í tvo fyrstu leikmenn sína í sumar og eru þeir báðir varnarmenn sem gætu gert frábæra hluti í ítalska boltanum.

Hollenska stórveldið PSV Eindhoven er búið að festa kaup á hollenska kantmanninum Noa Lang fyrir metfé.

Suður-Kóreumaðurinn Lee Kang-In er orðinn leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi en hann kemur frá Real Mallorca á Spáni.
Megan Rapinoe, fyrirliði bandaríska kvennalandsliðsins, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið en hún greinir frá ákvörðun sinni á samfélagsmiðlum.

Stefan De Vrij hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Inter sem heldur honum hjá félaginu til ársins 2025.

Diego Llorente varnarmaður Leeds United er genginn aftur til liðs við Roma á lánssamningi út næstu leiktíð.

Danski landsliðsmaðurinn Kasper Dolberg skrifaði í gær undir fjögurra ára samning við belgíska félagið Anderlecht.
Kongómaðurinn Neeskens Kebano er farinn frá Fulham eftir sjö ára dvöl hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Enska B-deildarfélagið Coventry City er búið að ganga frá kaupum á enska framherjanum Ellis Simms.
Daley Blind er formlega genginn til liðs við Girona á Spáni en hann gerði tveggja ára samning.
Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain halda áfram að tilkynna um komu nýrra leikmanna fyrir komandi tímabil. Úrúgvæski landsliðsmaðurinn Manuel Ugarte er kominn frá Sporting Lissabon. Ugarte er 22 ára varnartengiliður sem var sterklega orðaður við Chelsea fyrr í sumar. Ugarte hefur skrifað undir samning til 2028. Fyrr í vikunni fékk PSG til sín spænska sóknarmanninn Marco Asensio frá Real Madrid og slóvakíska miðjumanninn Milan Skriniar frá PSG. Þá var ráðning á Luis Enrique staðfest.
Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur verið lánuð frá Bayern München til Bayer Leverkusen fyrir komandi tímabil. Karólína fór til Bayern í janúar 2021 og hefur leikið 34 leiki fyrir félagið. Hún þurfti að sætta sig við mikla bekkjarsetu hjá félaginu. Á heimasíðu Bayern München er henni óskað góðs gengis í lánsdvölinni og sagt að þessi 21 árs leikmaður muni öðlast mikilvæga reynslu í Bundesligunni.
Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason hefur verið kynntur sem nýr leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Midtjylland. Hann mun klæðast treyju númer 15 á Jótlandi. „Sverrir er varnarmaður með alþjóðleg gæði og mikla reynslu. Við höfum verið að leita að leiðtogatýpu og hann uppfyllir það alla leið. Sverrir getur stýrt vörninni og er karakter sem gerir aðra í kringum sig betri," segi Svend Graversen, íþóttastjóri Midtjylland.

Rangers er búið að krækja í nígeríska framherjann Cyriel Dessers, sem skoraði 7 mörk í 29 leikjum er Cremonese endaði á botni ítölsku Serie A deildarinnar á síðustu leiktíð.

Ótti bandaríska viðskiptajöfursins John Textor er að verða að raunveruleika þar sem félagslið í hans eigu halda áfram að missa sína mikilvægustu menn til Sádí-Arabíu.

Eintracht Frankfurt er búið að ganga frá lánssamningi við Leeds United til að tryggja sér þjónustu þýska miðvarðarins Robin Koch, sem á 8 leiki að baki fyrir landslið Þýskalands.

Það er nóg um að vera hjá Arsenal í dag þar sem félagið er búið að staðfesta nýjan langtímasamning við Reiss Nelson.

Ítalski landsliðsmaðurinn Davide Frattesi er genginn til liðs við Inter á lánssamningi með kaupskyldu.

Real Betis er búið að staðfesta komu Ayoze Perez á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Leicester City rann út. Hann gerir fjögurra ára samning við spænska félagið.