Fotbolti.net
08.07.23 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson

PSV greiðir metfé fyrir Noa Lang (Staðfest)

PSV greiðir metfé fyrir Noa Lang (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hollenska stórveldið PSV Eindhoven er búið að festa kaup á hollenska kantmanninum Noa Lang fyrir metfé.

PSV borgar 15 milljónir evra fyrir Lang, sem er meira en félagið greiddi fyrir Mateja Kezman, Bruma eða Hirving Lozano.

Lang gerir fimm ára samning við PSV, en hann er 24 ára gamall og hefur skorað tvö mörk í átta landsleikjum með Hollandi, eftir að hafa spilað 30 leiki fyrir unglingalandsliðin og skorað í þeim 9 mörk.

Lang er uppalinn hjá Ajax en var seldur til Club Brugge fyrir þremur árum, eftir að Ajax fékk Ryan Babel til liðs við sig. Þá var ekkert pláss fyrir Lang í byrjunarliðinu.

Hann hefur verið lykilmaður frá komu sinni til Club Brugge og verður spennandi að fylgjast með honum á nýjum kafla hjá PSV.

Lang fær sjöuna hjá PSV, sem Xavi Simons klæddist á síðustu leiktíð. Simons tekur tíuna frá Fabio Silva, sem snýr aftur til Wolves eftir lánssamninginn.

Lang er rappari og hér fyrir neðan má sjá kveðjumyndbandið hans til stuðningsmanna Club Brugge, með hans eigin rapp lagi í undirspili.

Noa Lang says farewell from Club Brugge with a song he made himself
by u/infinitemonkey25 in soccer

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.