Lee Kang-in til PSG (Staðfest)

Mynd: PSG

Mynd: PSG
Suður-Kóreumaðurinn Lee Kang-In er orðinn leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi en hann kemur frá Real Mallorca á Spáni.
Kang-In er 22 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður en hann getur spilað í öllum fremstu stöðunum á vellinum.
Hann flutti til Spánar aðeins 10 ára gamall og spilaði með akademíu Valencia.
Árið 2018 varð hann yngsti Suður-Kóreumaðurinn til að spila leik í atvinnumennsku í Evrópu er hann kom inn á í bikarleik með Valencia en hann lék með liðinu til 2021 áður en Mallorca keypti hann.
Frammistaða hans hefur vakið verðskuldaða athygli og nú mun hann spila á stærsta sviðinu með Paris Saint-Germain í Frakklandi en félagið keypti hann á 22 milljónir evra.
Leikmaðurinn var kynntur fyrir stuðningsmönnum og fjölmiðlum í dag en hann gerði fimm ára samning við franska félagið.

Paris Saint-Germain is pleased to announce the arrival of Lee Kang-In until 2028.
— Paris Saint-Germain (@PSG_English) July 8, 2023
The 22-year-old attacking midfielder becomes the first South Korean player to sign for the club.#WelcomeLeeKangIn ????????https://t.co/HvcsUtCxz5