Fotbolti.net
09.07.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Slaven Bilic tekur við Al-Fateh (Staðfest)

Slaven Bilic tekur við Al-Fateh (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Króatíski þjálfarinn Slaven Bilic hefur verið ráðinn nýr þjálfari Al-Fateh í Sádi-Arabíu.
Bilic stýrði síðast Watford í ensku B-deildinni. Hann tók við í september en var látinn fara í mars eftir slakan árangur í deildinni.

Áður þjálfaði hann West Ham og WBA á Englandi en hann er ævintýramaður mikill og hefur einnig þjálfað í Tyrklandi, Rússlandi og Kína auk þess sem hann stýrði Al-Ittihad í Sádi-Arabíu.

Hann er nú mættur aftur til Sádi-Arabíu og mun stýra liði Al-Fateh næstu árin.

Al-Fateh hafnaði í 6. sæti deildarinnar á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.