Fotbolti.net
08.07.23 - 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Llorente aftur til Roma á láni (Staðfest)

Llorente aftur til Roma á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Roma

Diego Llorente varnarmaður Leeds United er genginn aftur til liðs við Roma á lánssamningi út næstu leiktíð.

Þessi 29 ára gamli spænski miðjumaður gekk til liðs við Roma á láni í janúar og lék 12 leiki með ítalska liðinu. Hann lék m.a. þrjá leiki í Evrópudeildinni þar sem Roma komst í úrslit en tapaði í vítaspyrnukeppni gegn Sevilla.

Hann kom inn á í seinni hálfleik framlengingarinnar.

Llorente hefur leikið 54 leiki fyrir Leeds frá því hann gekk til liðs við félagið árið 2020 frá Real Sociedad. Hann á að baki tíu landsleiki fyrir hönd Spánar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.