Kolasinac og Bakker til Atalanta (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Atalanta er búið að krækja í tvo fyrstu leikmenn sína í sumar og eru þeir báðir varnarmenn sem gætu gert frábæra hluti í ítalska boltanum.
Sead Kolasinac ætti að vera lesendum kunnugur eftir dvöl sína hjá Arsenal, en þessi bosníski varnarmaður getur bæði spilað sem vinstri bakvörður eða miðvörður.
Kolasinac er 30 ára gamall og kemur á frjálsri sölu frá Marseille, þar sem hann var í mikilvægu hlutverki. Hann lék 118 leiki á tíma sínum hjá Arsenal og á 53 landsleiki að baki fyrir Bosníu.
Mitchel Bakker er einnig kominn til félagsins en hann spilar sömu stöðu og Kolasinac. Hann er fjölhæfur vinstri bakvörður sem hefur verið að gera góða hluti með Bayer Leverkusen í þýska boltanum.
Atalanta borgar um 10 milljónir evra fyrir Bakker, sem gerir fjögurra ára samning við félagið. Kolasinac gerir tveggja ára samning.
Bakker er uppalinn hjá Ajax en spilaði 40 leiki fyrir PSG tímabilið 2020-21, áður en hann var seldur til Leverkusen fyrir um sjö milljónir evra.
Hann er 23 ára gamall og er með 53 leiki að baki fyrir yngri landslið Hollands.
Atalanta endaði í fimmta sæti Serie A deildarinnar á síðustu leiktíð og fer því beint í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í haust.


Mynd: EPA




