Fotbolti.net
08.07.23 - 18:40
Brynjar Ingi Erluson

Rapinoe leggur skóna á hilluna eftir tímabilið (Staðfest)

Megan Rapinoe

Megan Rapinoe

Canon

Mynd: Getty Images

Hertz
Megan Rapinoe, fyrirliði bandaríska kvennalandsliðsins, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið en hún greinir frá ákvörðun sinni á samfélagsmiðlum.
Rapinoe er 38 ára gömul og er sannkölluð fyrirmynd fyrir kvennaknattspyrnu.

Hún hefur verið ein helsta talskona fyrir íþróttina og átt þátt í að koma henni á hærri stall síðustu ár og þá barist fyrir að kvennalandsliðið myndi fá jafn há laun og karlaliðið.

Þetta verður hennar síðasta ár í fótboltanum en hún mun hætta í lok ársins.

Rapinoe á 199 landsleiki og 63 mörk fyrir Bandaríkin þar sem hún hefur unnið HM tvisvar og gull á Ólympíuleikunum. Þá var hún valin besti leikmaður heims af FIFA árið 2019 og vann þá Ballon d'or verðlaunin sama ár.

Hún hefur verið á mála hjá OL Reign í bandarísku ofurdeildinni frá 2013 en þetta verður hennar síðasta tímabil og klárast það um miðjan nóvember.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.