Coventry fær Simms frá Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska B-deildarfélagið Coventry City er búið að ganga frá kaupum á enska framherjanum Ellis Simms.
Simms er 22 ára gamall og kemur frá Everton en hann spilaði 12 leiki og skoraði 1 mark á tíma sínum þar.
Hann eyddi fyrri hluta síðustu leiktíðar á láni hjá Sunderland og skoraði þá 7 mörk í B-deildinni en var kallaður aftur til Everton um áramótin og kláraði tímabilið með liðinu.
Hann var ekki í plönum Sean Dyche, stjóra Everton, fyrir komandi leiktíð og var hann því seldur til Coventry fyrir 8 milljónir punda.
Simms skrifaði undir fjögurra ára samning hjá Coventry sem komst í úrslitaleik umspilsins á síðasta tímabili.