Fotbolti.net
08.07.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Kasper Dolberg til Anderlecht (Staðfest)

Kasper Dolberg til Anderlecht (Staðfest)
Canon

Mynd: Anderlecht

Danski landsliðsmaðurinn Kasper Dolberg skrifaði í gær undir fjögurra ára samning við belgíska félagið Anderlecht.
Dolberg er 25 ára gamall framherji sem kemur til Anderlecht frá Nice í Frakklandi.

Þessi danski leikmaður þótti eitt sinn einn efnilegasti framherji Danmerkur en hann steig sín fyrstu skref með Silkeborg áður en hann var seldur til Ajax í Hollandi.

Hann skoraði 23 mörk á fyrsta tímabili sínu með Ajax en náði ekki að fylgja því eftir og var á endanum seldur til Nice.

Dolberg gerði 24 mörk í 85 leikjum með Nice og eyddi þá síðasta tímabili á láni hjá bæði Sevilla og Hoffenheim.

Anderlecht keypti Dolberg í gær fyrir 5 milljónir evra og skrifaði hann undir fjögurra ára samning.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.