Daley Blind til Girona (Staðfest)

Mynd: Girona

Mynd: Girona
Daley Blind er formlega genginn til liðs við Girona á Spáni en hann gerði tveggja ára samning.
Blind var án félags eftir að hann yfirgaf Bayern München um mánaðamótin.
Hollendingurinn er 33 ára gamall og hefur áður spilað fyrir Ajax og Manchester United. Þá á hann 101 landsleik og 3 mörk fyrir hollenska landsliðið.
Hann skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við spænska úrvalsdeildarfélagið Girona.
Girona hafnaði í 10. sæti La Liga á síðustu leiktíð en félagið er í eigu City Group, sem á einnig félög á borð við Manchester City, New York City, Lommel, Palermo, Melbourne City og sex önnur félög um allan heim.

???????????????????????????????????? @BlindDaley ????
— Girona FC (@GironaFC) July 7, 2023