Fotbolti.net
08.07.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Kebano farinn frá Fulham (Staðfest)

Kebano farinn frá Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Kongómaðurinn Neeskens Kebano er farinn frá Fulham eftir sjö ára dvöl hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Kebano er 31 árs gamall miðjumaður en hann kom til Fulham frá Genk árið 2016.

Hann spilaði 160 leiki fyrir Fulham og skoraði 24 mörk á tíma sínum hjá félaginu en samningur hans rann út um mánaðamótin.

Fulham bauð Kebano nýjan samning en hann hafnaði samningstilboðinu og ákvað að leita annað.

Kebano var afar vinsæll í búningsklefanum. Hann átti stóran þátt í að koma liðinu aftur upp í úrvalsdeildina árið 2022. Hógværð er eitthvað sem hefur einkennt feril Kebano.

Í yfirlýsingu Fulham kemur fram að það verður mikill missir af honum en óljóst er hvar hann mun spila á næstu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.