Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25202 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR17.12.2022, 18:00

Viktoría Diljá í Fylki (Staðfest)

<p>Knattspyrnudeild Fylkis hefur staðfest að Viktoría Diljá Halldórsdóttir sé búin að skrifa undir tveggja ára samning við félagið.</p>

FRÉTTIR17.12.2022, 10:41

Dagur Austmann í Grindavík (Staðfest)

Dagur Austmann skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Lengjudeildarlið Grindavíkur en hann kemur til félagsins frá Leikni. Knattspyrnudeild Grindavík segir frá þessu í tilkynningu á heimasvæði sínu á samfélagsmiðlum.

FRÉTTIR16.12.2022, 22:33

Brynjar Snær í HK (Staðfest)

Brynjar Snær Pálsson er genginn í raðir HK frá ÍA en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Bestu-deildarfélagið í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HK-ingum.

FRÉTTIR16.12.2022, 20:25

Salomon Rondon yfirgefur Everton (Staðfest)

Venesúelamaðurinn Salomon Rondon hefur rift samningi sínum við enska úrvalsdeildarfélagið Everton en enska félagið sagði frá þessu í tilkynningu í kvöld.

FRÉTTIR16.12.2022, 16:37

Joey Gibbs í Stjörnuna (Staðfest)

Ástralski sóknarmaðurinn Joey Gibbs hefur fengið félagaskipti úr Keflavík og yfir í Stjörnuna. Gibbs hefur verið hjá Keflavík frá 2020 og átti hann stóran þátt í því að liðið komst upp í Bestu deildina það sumarið. Hann skoraði þá 21 mark í 19 leikjum í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR16.12.2022, 12:45

Emil Berger yfirgefur Leikni (Staðfest)

Miðjumaðurinn Emil Berger hefur yfirgefið herbúðir Leiknis í Breiðholti og mun ekki spila með liðinu á næstu leiktíð. Þetta segir í tilkynningu félagsins í dag.

FRÉTTIR16.12.2022, 12:30

Lesendur velja Messi þann besta í sögunni (Staðfest)

Lionel Messi er besti fótboltamaður sögunnar að mati lesenda Fótbolta.net. Yfir 2.600 manns tóku þátt í könnun þar sem Messi hlaut tæplega 54% atkvæða. Messi verður í eldlínunni á sunnudag þegar hann spilar sinn síðasta HM leik, úrslitaleik gegn Argentínu.

FRÉTTIR16.12.2022, 12:14

Arnleifur í ÍA (Staðfest)

Arnleifur Hjörleifsson er genginn í raðir ÍA frá Kórdrengjum og skrifar undir tvegja ára samning. Frá þessu greinir ÍA á samfélagsmiðlum sínum. Hann er uppalinn í Ólafsvík en spilaði með ÍA í 2. og 3. flokki, var hluti af sigursælu liði ÍA í 2. flokki sem varð Íslandsmeistari árin 2018 og 2019.

FRÉTTIR16.12.2022, 06:00

Anton Freyr í Þrótt Vogum (Staðfest)

<p>Anton Freyr Hauks Guðlaugsson er genginn til liðs við Þrótt Vogum og tekur slaginn með félaginu í 2. deild næsta sumar.</p>

FRÉTTIR15.12.2022, 16:37

Portúgal búið að reka Santos (Staðfest) - Mourinho efstur á blaði

Portúgalska fótboltasambandið hefur rekið Fernando Santos en hann hefur verið landsliðsþjálfari í átta ár. Hápunkturinn kom klárlega 2016 þegar hann stýrði portúgalska liðinu til Evrópumeistaratitilsins. Árið 2019 vann liðið svo Þjóðadeildina. Santos er 68 ára og var með samning til 2024 en honum hefur nú verið rift eftir að Portúgal féll úr leik gegn Marokkó í 8-liða úrslitum HM í Katar.

FRÉTTIR15.12.2022, 15:00

Dúna ráðin til Íslendingafélagsins Kristianstad (Staðfest)

Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir, betur þekkt sem Dúna, hefur verið ráðin til starfa hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Kristianstad. Tekur hún við starfi þrekþjálfara hjá liðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

FRÉTTIR15.12.2022, 14:36

Endrick fer til Real Madrid 2024 (Staðfest)

Brasilíska félagið Palmeiras hefur tilkynnt sölu á Endrick til Real Madrid. Kaupin ganga í gegn í júlí 2024, þegar leikmaðurinn verður 18 ára gamall. Leila Pereira, forseti Palmeiras, segir að um stærstu viðræður í sögu brasilíska fótboltans hafi verið að ræða. Á heimasíðu félagsins er haft eftir Endrick að Palmeiras verði alltaf í hjarta sínu. Hann er yngsti leikmaður sem spilað hefur fyrir aðallið félagsins.

FRÉTTIR14.12.2022, 12:00

Siggi Bond í KFK (Staðfest)

KFK hefur fengið mikinn liðsstyrk fyrir komandi átök í 4. deildinni því Sigurður Gísli Bond Snorrason er genginn í raðir félagsins. Siggi kemur frá Aftureldingu þar sem hann lék sautján leiki í Lengjudeildinni í fyrra og skoraði tvö mörk. Þá skoraði hann fjögur mörk í fjórum leikjum í Mjólkurbikarnum. Þar áður lék hann með Þrótti Vogum og hjálpaði liðinu að komast upp í Lengjudeildina sumarið 2021.

FRÉTTIR14.12.2022, 09:27

Lilja Lív og Rakel Lóa heim í Gróttu (Staðfest)

Þær Lilja Lív Margrétardóttir og Rakel Lóa Brynjarsdóttir hafa skrifað undir samning hjá knattspyrnudeild Gróttu. Lilja og Rakel eru báðar uppaldar hjá félaginu en hafa undanfarin misseri söðlað um í Bestu deild kvenna og Lengjudeildinni. Þetta kom fram í færslu Gróttu á samfélagsmiðlum í gær.

FRÉTTIR13.12.2022, 09:20

Klæmint Olsen í Breiðablik (Staðfest)

Breiðablik hefur fengið færeyska sóknarmanninn Klæmint Andrasson Olsen í sínar raðir frá NSÍ Runavík þar sem hann hefur leikið allan sinn feril. Breiðablik gerir eins árs lánssamning við framherjann. Klæmint er markahæsti leikmaður í sögu Færeyja, hefur skorað 242 mörk í 363 leikjum með NSÍ og er markahæstur í sögu færeysku deildarinnar og færeyska landsliðsins.

FRÉTTIR12.12.2022, 06:00

Þóra og Þórey í Fram (Staðfest)

Frænkurnar, Þóra Rún Óladóttir og Þórey Björk Eyþórsdóttir, skrifuðu í gær undir tveggja ára samning við Fram.

FRÉTTIR11.12.2022, 20:05

Critchley tekur við QPR (Staðfest)

Enski þjálfarinn Neil Critchley er nýr stjóri QPR í ensku B-deildinni en hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning í dag.

FRÉTTIR11.12.2022, 16:49

Óskar Örn Hauksson í Grindavík (Staðfest)

<p>Grindavík tilkynnti rétt í þessu að Óskar Örn Hauksson sé genginn í raðir félagsins frá Stjörnunni.   Hann samdi við Grindavík út tímabilið 2023.</p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.