Siggi Bond í KFK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFK hefur fengið mikinn liðsstyrk fyrir komandi átök í 4. deildinni því Sigurður Gísli Bond Snorrason er genginn í raðir félagsins.
Siggi kemur frá Aftureldingu þar sem hann lék sautján leiki í Lengjudeildinni í fyrra og skoraði tvö mörk. Þá skoraði hann fjögur mörk í fjórum leikjum í Mjólkurbikarnum. Þar áður lék hann með Þrótti Vogum og hjálpaði liðinu að komast upp í Lengjudeildina sumarið 2021.

Siggi er fæddur árið 1995 og er uppalinn hjá FH. Hann hefur einnig leikið með ÍR, Kórdrengjum og Fram á sínum ferli.
KFK - Knattspyrnufélag Kópavogs - lék vel síðasta sumar og tókst að vinna B-riðilinn í 4. deild, endaði fyrir ofan Tindastól. Liðið vann tólf af fjórtán leikjum sínum og endaði með +65 í markatölu.
Í úrslitakeppninni féll liðið úr leik fyrir Ými eftir viðureign sem endaði 7-6 eftir framlengdan seinni leik.