Fotbolti.net
14.12.22 - 09:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lilja Lív og Rakel Lóa heim í Gróttu (Staðfest)

Við undirskrift

Við undirskrift

Canon

Mynd: Grótta

Hertz
Þær Lilja Lív Margrétardóttir og Rakel Lóa Brynjarsdóttir hafa skrifað undir samning hjá knattspyrnudeild Gróttu. Lilja og Rakel eru báðar uppaldar hjá félaginu en hafa undanfarin misseri söðlað um í Bestu deild kvenna og Lengjudeildinni. Þetta kom fram í færslu Gróttu á samfélagsmiðlum í gær.
Lilja Lív er fædd árið 2005 og er uppalin í Gróttu. Hún tók sín fyrstu skref með meistaraflokki árið 2020 þegar liðið lék í Lengjudeildinni. Lilja hefur spilað 34 leiki fyrir Gróttu og skorað í þeim sjö mörk. Lilja skipti yfir í KR um mitt tímabil í sumar og lék sjö leiki í Bestu deild kvenna með liðinu en hefur ákveðið að snúa aftur heim og taka slaginn með uppeldisfélaginu í Lengjudeildinni næsta sumar. Lilja á að baki fjóra leiki með U17 ára landsliðinu og tvo með U16.

Rakel Lóa er fædd árið 2004 og er uppalin Gróttukona. Rakel spilaði fyrsta meistaraflokks leik sinn árið 2019 og hefur spilað 44 leiki fyrir Gróttu. Í fyrra skrifaði Rakel undir samning við Stjörnuna sem leikur í Bestu deildinni en fór síðan á lán til HK um mitt sumar þar sem hún lék níu leiki í Lengjudeild kvenna. Rakel ætlar nú að taka slaginn með Gróttu á ný í Lengjudeildinni.

„Það var mér mikið hjartans mál að í Gróttu liðinu séu uppaldar stelpur í stórum hlutverkum. Það var því algjört forgangsatriði að fá Lilju og Rakel aftur heim. Það var mjög erfitt fyrir stelpurnar að yfirgefa félagið á sínum tíma, enda báðar tvær með risastórt Gróttu hjarta. Þær koma til með að styrkja okkur mikið og býst ég við miklu af þeim báðum á komandi tímabili þrátt fyrir ungan aldur, enda er aldur bara tala," sagði Pétur Rögnvaldsson, þjálfari liðsins, við undirskriftina.

Grótta endaði í 2. sæti 2. deildar í sumar og tryggði sér sæti í Lengjudeildinni eftir að hafa fallið í fyrra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.