Þóra og Þórey í Fram (Staðfest)

Mynd: Fram

Mynd: Fram

Frænkurnar, Þóra Rún Óladóttir og Þórey Björk Eyþórsdóttir, skrifuðu í gær undir tveggja ára samning við Fram.
Báðar koma þær úr unglingastarfi FH en Þóra er fædd árið 1999 á meðan Þórey er tveimur árum yngri.
Þóra þekkir vel til hjá Fram en hún spilaði með liðinu árið 2020 og 2021. Hún var á láni hjá Haukum á síðustu leiktíð og spilaði 4 leiki í Lengjudeildinni.
Þórey hefur á meðan spilað fyrir Hauka og Fjölni ásamt því að hafa leikið fyrir FH.
„Þóra er flottur markmaður sem hefur gert mjög vel í þeim æfingaleikjum sem við höfum spilað undanfarið. Það er frábært að fá hana loks alfarið til Fram og við bindum miklar vonir við hana í framtíðinni. Þórey er eldsnöggur kantmaður með góða tækni. Hún hefur sömuleiðis gert mjög vel í æfingaleikjum með okkur og skoraði m.a. glæsilegt mark gegn Augnabliki á dögunum. Báðar hafa þær reynslu úr Lengjudeildinni og það mun hjálpa okkur á næsta tímabili,“ sögðu Aníta Lísa Svansdóttir og Óskar Smári Haraldsson, þjálfarar Fram, um leikmennina.
Fram vann sér sæti í Lengjudeildinni í sumar með því að vinna 2. deild kvenna.

Þórey Björk er einnig gengin í raðir Fram

Mynd: Fram