Grindavík tilkynnti rétt í þessu að Óskar Örn Hauksson sé genginn í raðir félagsins frá Stjörnunni. Hann samdi við Grindavík út tímabilið 2023.
Óskar Örn, sem er 38 ára gamall, er að snúa aftur til Grindavíkur þar sem hann lék á árunum 2004 til 2006. Hann skipti í kjölfarið yfir í KR þar sem hann lék í fjölda ára áður en hann færði sig yfir til Stjörnunnar fyrir síðasta tímabil. Hann lék alls 57 leiki með Grindavík í deild og bikar á sínum tíma og skoraði 12 mörk fyrir félagið.
„Ég er mjög stoltur af því að fá Óskar Örn aftur til Grindavíkur. Hér átti hann frábæran tíma með félaginu og það mun gleða stuðningsmenn félagsins gífurlega að sjá Óskar aftur í gulu og bláu. Óskar færir liðinu mikið með reynslu sinni og karakter. Með því að fá Óskar til félagsins erum við að senda skýr skilaboð um að Grindavík ætlar að berjast við að komast upp í Bestu deildina á nýjan leik,“ segir Haukur Guðberg Einarsson, formaður Knattspyrnudeildar Grindavíkur í tilkynningu frá félaginu.
Hann bætist við í hóp þeirra leikmanna sem hafa samið við félagið á síðustu vikum en það eru þeir Kristófer Konráðsson, Einar Karl Ingvarsson, Alexander Veigar Þórarinsson og Marko Vardic.
Óskar Örn á ný í Grindavík??
— UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur (@umfg) December 11, 2022
Óskar Örn Hauksson hefur skrifað undir samning við Grindavík út tímabilið 2?0?2?3?.
Nánar ???? https://t.co/Y5mWI4Gazr
Áfram Grindavík!
???????? pic.twitter.com/jNuGgjGqrJ