Fotbolti.net
16.12.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Anton Freyr í Þrótt Vogum (Staðfest)

Anton Freyr í Þrótt Vogum (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur Vogum Facebook

Anton Freyr Hauks Guðlaugsson er genginn til liðs við Þrótt Vogum og tekur slaginn með félaginu í 2. deild næsta sumar.

Anton Freyr er 25 ára gamall miðvörður og gerir tveggja ára samning við Þrótt en hann kemur til félagsins frá Haukum.

Anton lék 34 leiki í 2. deildinni með Haukum síðustu tvö sumur en þar á undan lék hann með uppeldisfélaginu sínu, Keflavík.

Hann á einnig 16 leiki að baki með yngri landsliðum Íslands.

„Þróttur Vogum fagnar komu Antons og by?ður hann hjartanlega velkominn i? Þróttarasamfélagið," segir í tilkynningu félagsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.