Fotbolti.net
13.12.22 - 09:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Klæmint Olsen í Breiðablik (Staðfest)

Klæmint Olsen í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Breiðablik hefur fengið færeyska sóknarmanninn Klæmint Andrasson Olsen í sínar raðir frá NSÍ Runavík þar sem hann hefur leikið allan sinn feril.

Breiðablik gerir eins árs lánssamning við framherjann. Klæmint er markahæsti leikmaður í sögu Færeyja, hefur skorað 242 mörk í 363 leikjum með NSÍ og er markahæstur í sögu færeysku deildarinnar og færeyska landsliðsins.
Klæmint var gert að finna sér nýtt félag eftir að NSÍ féll úr Betri deildinni í Færeyjum, þ.e. ef hann ætlaði sér að halda áfram að spila með landsliðinu.

Hann er 32 ára gamall og hefur skorað tíu mörk í 54 landsleikjum.

Komnir
Alex Freyr Elísson frá Fram
Arnór Sveinn Aðalsteinsson frá KR
Ágúst Eðvald Hlynsson frá Horsens (var á láni hjá Val)
Eyþór Aron Wöhler frá ÍA
Klæmint Olsen á láni frá NSÍ Runavík
Patrik Johannesen frá Keflavík
Benedikt Warén frá ÍA (var á láni)
Stefán Ingi Sigurðarson frá HK (var á láni)

Farnir
Adam Örn Arnarson í Fram (var á láni hjá Leikni)
Elfar Freyr Helgason í Val
Ísak Snær Þorvaldsson til Rosenborg
Mikkel Qvist
Omar Sowe til New York Red Bulls (var á láni)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.