Fotbolti.net
16.12.22 - 21:46
Brynjar Ingi Erluson

Selfoss fær fyrrum leikmann unglingaliðs Shakhtar (Staðfest)

Selfoss fær fyrrum leikmann unglingaliðs Shakhtar (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss hefur staðfest komu úkraínska leikmannsins Albert Gatilov. Hann skrifaði undir eins árs samning við félagið.
Gatilov, sem er 22 ára gamall, er uppalinn hjá úkraínska stórveldinu Shakhtar Donetsk, en hefur spilað síðustu ár í neðri deildunum í Úkraínu.

Hann kom hingað til lands í byrjun ársins og hefur nú skrifað undir eins árs samning við Selfoss.

Þessi ágæti leikmaður getur leyst flest allar stöður framarlega á vellinum.

Selfoss hafnaði í 9. sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili með 29 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.