Norður-Írar reka Baraclough (Staðfest)
Norður-Írland er í leit að nýjum þjálfara eftir að Ian Baraclough var látinn taka poka sinn í gær en þrír koma til greina í starfið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25203 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Norður-Írland er í leit að nýjum þjálfara eftir að Ian Baraclough var látinn taka poka sinn í gær en þrír koma til greina í starfið.
Brasilíski varnarmaðurinn Gabriel Magalhaes framlengdi í dag samning sinn við Arsenal til ársins 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Franck Ribery hefur formlega lagt skóna á hilluna, 39 ára gamall. Hann hefur reglulega misst af leikjum síðustu ár vegna meiðsla. Ribery vakti fyrst athygli hjá Marseille og sprakk svo algjörlega út hjá Bayern München. Hann var tólf ár hjá Bæjurum, spilað 425 leiki, skoraði 124 mörk og átti 182 stoðsendingar.

Steven Gerrard hefur stýrt sínum síðasta leik sem stjóri Aston Villa en félagið hefur staðfest að hann hefur yfirgefið félagið.

Afturelding er búin að semja við þjálfarateymið sem hefur gert flotta hluti með meistaraflokk kvenna undanfarin misseri.

Þýska fallbaráttuliðið Schalke er búið að reka Frank Kramer úr þjálfarastólnum eftir rétt rúmlega fjóra mánuði í starfi.

Selfoss hefur ákveðið að rifta samningi við sóknarmanninn Hrvoje Tokic og verður hann ekki áfram hjá félaginu.
Fylkir kynnti nú í kvöld nýja þjálfara kvennaliðs félagsins en við starfi aðalþjálfara tekur Keflvíkingurinn Gunnar Magnús Jónsson sem fékk ekki áframhaldandi samning hjá Keflavík á dögunum eftir áralangt starf. Honum til aðstoðar verður Sonný Lára Þráinsdóttir sem um árabil var einn besti markvörður landsins og á að baki fjölda titla sem leikmaður Breiðabliks,

Newcastle United er búið að staðfesta félagsskipti Amadou Diallo en hann hefur verið samningslaus síðan í sumar.

Brottrekstur í Bestu deild kvenna, Víkingur fékk heimaleikjabann og Ísland tapaði fyrir Portúgal í umspilinu fyrir HM kvenna. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Jökull Elísabetarson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, hefur framlengt samning við Stjörnuna til næstu ára og er kominn í fullt starf hjá félaginu. Ýmsar sögusagnir hafa verið í gangi um að Jökull gæti verið á leið úr Garðabænum en nú er ljóst að hann er ekki á förum. Jökull hefur í sumar verið aðstoðarmaður Ágústs Gylfasonar. Ágúst tók við Stjörnunni fyrir þetta tímabil og gerði þá tveggja ára samning.

Jonathan Glenn hefur verið rekinn úr starfi þjálfara kvennaliðs ÍBV en þetta staðfestir Þórhildur Ólafsdóttir eiginkona hans og leikmaður liðsins á Facebook í dag. Hún tilkynnir þar einnig að hún sé orðin fyrrverandi leikmaður liðsins.

Þórhildur fer þar ítarlega yfir stöðui mála hjá ÍBV og þann tíma sem Glenn stýrði liðinu en hann tók við fyrir ári síðan og hún segir að hann hafi verið síðasti kosturinn í stöðuna. Hún segir verulega mismunun milli karla- og kvennaliðs ÍBV og hending ef einstaklingar innan knattspyrnuráðs láti sjá sig á leikjum kvennaliðsins.

Phil Foden leikmaður Manchester City hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til ársins 2027.

Douglas Luiz hefur skrifað undir nýjan samning við Aston Villa, samningurinn gildir fram á sumarið 2026. Viðræður milli Villa og Luiz hófust strax eftir lokadag félagsskiptagluggans þegar Arsenal sýndi Luiz mikinn áhuga og Villa hafnaði þremur tilboðum frá toppliðinu. Í gær var svo greint frá því að Roma hefði áhuga á leikmanninum.
Davíð Smári Lamude hefur verið kynntur sem nýr þjálfari Vestra og skrifaði hann undir tveggja ára samning. Davíð tilkynnti í gær að hann væri hættur sem þjálfari Kórdrengja en hann gerði frábæra hluti sem þjálfari liðsins, hann kom liðinu upp úr neðstu deild upp í 1. deildina.
Davíð Smári Lamude er hættur með Kórdrengi en hann staðfestir þetta á Facebook-síðu sinni í kvöld. Davíð náði stórkostlegum árangri með liðið og kom því upp úr 4. deild og í næst efstu deild á sex árum sínum hjá félaginu.
Jóhann Kristinn Gunnarsson er nýr þjálfari Þórs/KA í Bestu deild kvenna en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.
Valur hefur tilkynnt það að Arnar Grétarsson muni taka við karlaliði félagsins fyrir næstu leiktíð. Þetta hefur verið verst geymda leyndarmál fótboltans síðustu vikur, eftir að Arnar var látinn fara frá KA. Akureyrarfélagið ákvað að skipta um þjálfara eftir að Arnar náði munnlegu samkomulagi við Val.
Ítalska félagið Hellas Verona er í leit að nýjum þjálfara eftir að hafa rekið Gabriele Cioffi en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Daniele De Rossi skrifaði í dag undir tveggja ára samning við SPAL, De Rossi tekur við sem aðaþjálfari ítalska liðsins.