Cioffi rekinn frá Verona (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið Hellas Verona er í leit að nýjum þjálfara eftir að hafa rekið Gabriele Cioffi en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Cioffi tók við Verona í sumar eftir að hafa gert frábæra hluti með Udinese á síðustu leiktíð.
Honum tókst að bjarga Udinese frá falli og hafna í 12. sæti Seríu A á síðasta tímabili en fékk ekki nýjan samning hjá félaginu og fór því til Verona.
Cioffi náði aðeins í 5 stig úr fyrstu níu leikjunum og meðal annars tapað síðustu fjórum leikjum. Verona situr í 18. sæti deildarnnar, en félagið hefur nú rekið Cioffi og er í leit að nýjum þjálfara.
Þetta er fjórði þjálfarinn sem er rekinn í Seríu A á þessu tímabili á eftir Giovanni Stroppa, Sinisa Mihajlovic og Marco Giampaolo.