Jökull Elísabetarson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, hefur framlengt samning við Stjörnuna til næstu ára og er kominn í fullt starf hjá félaginu.
Ýmsar sögusagnir hafa verið í gangi um að Jökull gæti verið á leið úr Garðabænum en nú er ljóst að hann er ekki á förum. Jökull hefur í sumar verið aðstoðarmaður Ágústs Gylfasonar. Ágúst tók við Stjörnunni fyrir þetta tímabil og gerði þá tveggja ára samning.
Ýmsar sögusagnir hafa verið í gangi um að Jökull gæti verið á leið úr Garðabænum en nú er ljóst að hann er ekki á förum. Jökull hefur í sumar verið aðstoðarmaður Ágústs Gylfasonar. Ágúst tók við Stjörnunni fyrir þetta tímabil og gerði þá tveggja ára samning.
„Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur að endurnýja og framlengja samning okkar við Jökul sem deilir fullkomlega þeirri sýn sem unnið hefur verð eftir undanfarin ár. Sú staðreynd að félagið hefur nú gengið frá samning til næstu ára við hann í fullu starfi gerir okkur kleift að bæta innviði okkar á þeim sviðum sem við teljum mikilvægt í þeirri uppbyggingu sem við erum í," segir Helgi Hrannarr, formaður meistaraflokksráðs Stjörnunnar, í tilkynningu frá félaginu.
„Við teljum að við höfum tekið hárrétta ákvörðun varðandi þá leið sem félagið fór á þeim tímapunkti og sú vegferð hefur skilað bæði góðum grunni en jafnframt ábyrgum rekstri sem er grunnforsenda fyrir áframhaldandi uppbyggingu. Ég er sannfærður um að teymið okkar mun stíga næstu skref í uppbyggingu liðsins enda má segja að það sé komið að kaflaskilum þar sem félagið hefur nú unnið sig út úr þeirri stöðu sem var uppi til skamms tíma og við lítum mjög bjartsýnum augum á framhaldið."
Sjálfur hefur Jökull þetta að segja:
„Ég er gríðarlega ánægður að framlengja samning minn við Stjörnuna. Stjarnan er eitt allra mest spennandi félag landsins, með ótrúlega aðstöðu og frábæra stuðningsmenn. Nú þurfum við að leggja meira á okkur, allir sem koma að liðinu og leikmenn. Við ætlum að þróa lið sem vinnur titla og ég er mjög spenntur að fara á fullt í þeirri vinnu með liðið." segir Jökull Ingason Elísabetarson.
Stöðutaflan

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir