FRÉTTIR02.09.2022, 17:00
Varnarmaðurinn Jan Vertonghen er kominn heim til Belgíu og er orðinn leikmaður Anderlecht. Hann gerði tveggja ára samning.
Þessi 35 ára leikmaður á 139 landsleiki fyrir Belga en hann hefur spilað fyrir Benfica í Portúgal síðan 2020. Hann hefur leikið með Belgíu á tveimur Evrópumótum og tveimur heimsmeistaramótum.
FRÉTTIR02.09.2022, 13:00
Michy Batshuayi var á leið til Nottingham Forest í gær en ekki tókst að skila inn öllum gögnum í tæka tíð og því gengu skiptin ekki í gegn.
Batshuayi verður þó ekki áfram hjá Chelsea því tyrkneska félagið Fenerbahce tilkynnti í dag að belgíski sóknarmaðurinn væri kominn til félagsins. Glugginn er opinn lengur í Tyrklandi.
FRÉTTIR02.09.2022, 08:45

Lille styrkti sig með tveimur leikmönnum á lokadegi sumargluggans. Andre Gomes er kominn á lánssamningi út tímabilið en hann á aðeins tvö ár eftir af samningi sínum við Everton.

FRÉTTIR02.09.2022, 08:30

Valencia er búið að tryggja sér hollenska kantmanninn Justin Kluivert á lánssamningi frá AS Roma sem gildir út tímabilið.

FRÉTTIR02.09.2022, 08:00

Celtic er búið að klófesta danska miðjumanninn Oliver Abildgaard á eins árs lánssamningi frá Rubin Kazan í Rússlandi.

FRÉTTIR02.09.2022, 07:45

Argentínski varnarmaðurinn Federico Fernandez er búinn að yfirgefa Newcastle United eftir fjögur ár hjá félaginu.

FRÉTTIR02.09.2022, 07:35

Juventus lánaði tvo miðjumenn til toppliða í enska boltanum á gluggadegi félagsskiptamarkaðarins í gær, annar þeirra er Denis Zakaria sem mun spila með Chelsea út tímabilið.

FRÉTTIR02.09.2022, 07:30

Chelsea er búið að staðfesta að samkomulag náðist við spænska bakvörðinn Marcos Alonso um að binda enda á samning hans við félagið svo hann geti gengið í raðir Barcelona.

FRÉTTIR02.09.2022, 07:15

Spænska félagið Real Valladolid er búið að staðfesta komu Kenedy til félagsins.

FRÉTTIR02.09.2022, 06:00

Huddersfield Town er búið að krækja í Luke Mbete á lánssamningi frá Englandsmeisturum Manchester City.

FRÉTTIR02.09.2022, 06:00

Valencia fær miðjumanninn efnilega Ilaix Moriba á lánssamningi frá RB Leipzig sem gildir út tímabilið.

FRÉTTIR02.09.2022, 06:00

Burnley hefur vakið athygli fyrir skemmtileg kynningarmyndbönd í sumar og bætti einu frábæru við í gær á gluggadegi þegar Jordan Beyer skrifaði undir lánssamning.

FRÉTTIR02.09.2022, 06:00

Harvey Vale er meðal efnilegustu leikmanna í akademíunni hjá Chelsea og var hann að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR01.09.2022, 23:55

Brighton er búið að ganga frá félagsskiptum skoska miðjumannsins Billy Gilmour frá Chelsea.

FRÉTTIR01.09.2022, 23:46

Chelsea er búið að festa kaup á Pierre-Emerick Aubameyang sem kemur frá Barcelona.

FRÉTTIR01.09.2022, 23:36

Nottingham Forest er búið að staðfesta kaup á Josh Bowler sem hefur verið lánaður beint út til systurfélags Forest í Grikklandi, Olympiakos.

FRÉTTIR01.09.2022, 23:30

Southampton er búið að binda enda á sumarkaupin og tók lokadag sumargluggans með trompi.

FRÉTTIR01.09.2022, 23:20

Leeds er búið að tilkynna félagsskipti Wilfried Gnonto frá FC Zürich. Þessi ítalski táningur er talinn kosta innan við 10 milljónir punda en sú upphæð getur hækkað með árangurstengdum aukagreiðslum.

FRÉTTIR01.09.2022, 23:10

Nottingham Forest er búið að staðfesta komu 22 ára varnarmannsins Loic Bade á lánssamningi frá Rennes með kaupmöguleika.

FRÉTTIR01.09.2022, 23:00

Fulham eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni og voru að staðfesta komu Daniel James á eins árs lánssamningi frá Leeds United.