Fotbolti.net
02.09.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Framlengir við Chelsea og fer til Hull (Staðfest)

Framlengir við Chelsea og fer til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Harvey Vale er meðal efnilegustu leikmanna í akademíunni hjá Chelsea og var hann að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við félagið.

Vale mun spila með Championship liði Hull City á lánssamningi út tímabilið. Hann er ekki nema 18 ára en verður 19 eftir tæpar tvær vikur.

Vale er miðjumaður og bar fyrirliðaband U19 landsliðs Englands sem vann EM í sumar.

Hann tók þátt í fimm bikarleikjum með Chelsea á síðustu leiktíð og er þetta hans fyrsti lánssamningur.

Vale er sókndjarfur miðjumaður, rúmir 180cm á hæð og með eitraða vinstri löpp.

Xavier Simons er einnig farinn frá Chelsea til Hull á lánssamningi út tímabilið ásamt markverðinum Nathan Baxter.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.