Fotbolti.net
02.09.22 - 07:15
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Kenedy frá Chelsea til Valladolid (Staðfest)

Kenedy frá Chelsea til Valladolid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Real Valladolid er búið að staðfesta komu Kenedy til félagsins.

Valladolid borgar ekki mikið fyrir þennan brasilíska kantmann sem er búinn að skrifa undir fimm ára samning við nýliðana í efstu deild.

Kenedy er 26 ára og þótti gríðarlegt efni á sínum tíma. Hann var lykilmaður í yngri landsliðum Brasilíu og var lánaður til Newcastle, Getafe, Granada og Flamengo en tókst aldrei að láta ljós sitt skína.

Hann hefur verið samningsbundinn Chelsea síðustu sjö ár og er ánægður með að hefja nýjan kafla á ferlinum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.