Fotbolti.net
02.09.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Burnley fær Beyer frá Gladbach (Staðfest)

Burnley fær Beyer frá Gladbach (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Burnley hefur vakið athygli fyrir skemmtileg kynningarmyndbönd í sumar og bætti einu frábæru við í gær á gluggadegi þegar Jordan Beyer skrifaði undir lánssamning.

Beyer er 22 ára varnarmaður sem getur leikið sem miðvörður eða hægri bakvörður. 

Hann á 19 leiki að baki fyrir yngri landslið Þýskalands og hefur spilað 36 leiki fyrir Gladbach.

Beyer er sextándi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Vincent Kompany sem reynir að koma Burnley beint aftur upp í úrvalsdeildina.

Burnley er með tólf stig eftir sjö umferðir, tveimur stigum eftir toppliði Sheffield United.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.