Fotbolti.net
02.09.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Huddersfield fær miðvörð frá Man City (Staðfest)

Huddersfield fær miðvörð frá Man City (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Huddersfield Town er búið að krækja í Luke Mbete á lánssamningi frá Englandsmeisturum Manchester City.

Mbete er miðvörður sem á 19 ára afmæli í september. Hann á sex leiki að baki fyrir yngri landslið Englands og er að fara út í fyrsta sinn á láni.

Mbete er talinn afar öflugur miðvörður sem gæti fundið sér sæti í byrjunarliði í sterkum leikmannahópi Huddersfield sem endaði í þriðja sæti Championship deildarinnar á síðustu leiktíð og tapaði úrslitaleik umspilsins gegn Nottingham Forest.

Mbete er átjándi leikmaðurinn sem City lánar út í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.