Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 02. september 2022 07:35
Ívan Guðjón Baldursson
Zakaria til Chelsea (Staðfest) - Falur fyrir 30 milljónir
Mynd: Getty Images

Juventus lánaði tvo miðjumenn til toppliða í enska boltanum á gluggadegi félagsskiptamarkaðarins í gær, annar þeirra er Denis Zakaria sem mun spila með Chelsea út tímabilið.


Arthur Melo fór til Liverpool og segir Juve að 32 milljón punda kaupmöguleiki fylgi honum.

Fabrizio Romano heldur því fram að það fylgi 30 milljón punda kaupmöguleiki með Zakaria.

Hvorki Arthur né Zakaria hafa hrifið þjálfarateymi Juve frá komu sinni til félagsins og eru báðir seljanlegir eftir komu Leandro Paredes og Paul Pogba í sumar.

Juve borgaði ekki nema tæplega 10 milljónir til að kaupa Zakaria af Gladbach sem var í talsverðum fjárhagsvandræðum og neyddist til að selja. Juve keypti miðjumanninn í janúar og eru aðeins sjö mánuðir síðan hann flutti til Ítalíu.


Athugasemdir
banner
banner
banner