
Fernandez til Elche eftir 89 leiki með Newcastle (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Argentínski varnarmaðurinn Federico Fernandez er búinn að yfirgefa Newcastle United eftir fjögur ár hjá félaginu.
Hann komst að samkomulagi við félagið um að binda enda á samninginn og er farinn til Spánar þar sem hann mun spila með Elche.
Fernandez, sem er 33 ára, er búinn að skrifa undir eins árs samning við Elche sem leikur í efstu deild.
Fernandez var fastamaður í landsliði Argentínu frá 2011 til 2014 en hefur aldrei fengið að spila fyrir þjóð sína eftir HM 2014.
Fernandez spilaði 89 leiki á fjórum árum hjá Newcastle, aðeins sjö á síðustu leiktíð. Fyrir það var hann hjá Swansea og Napoli.
💚 𝐅𝐄𝐑𝐍𝐀́𝐍𝐃𝐄𝐙 𝐌𝐄𝐑𝐂𝐀𝐔 🤍
— Elche Club de Fútbol 🌴🥇 (@elchecf) September 1, 2022
🇦🇷 ¡Un talento de Argentina que llega al Martínez Valero procedente de @SanLorenzo! pic.twitter.com/NNpGuHBJvF






