Southampton tók enn einn frá City (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Southampton er búið að binda enda á sumarkaupin og tók lokadag sumargluggans með trompi.
Félagið krækti í fjóra nýja leikmenn í dag og voru tveir þeirra úr unglingaliði Manchester City. Sá seinni sem var staðfestur heitir Juan Larios og er 18 ára gamall.
Larios var hjá akademíu Barcelona áður en hann fór til City en Joe Shields vildi fá hann yfir til Manchester. Shields var yfir akademíunni hjá City en er í dag yfir leikmannakaupum hjá Southampton.
Larios er fjórði leikmaðurinn sem Southampton kaupir úr akademíu Man City í sumar. Southampton borgar 6 milljónir fyrir Larios sem skrifar undir fimm ára samning.
Larios er vinstri bakvörður og fer beint í aðalliðið hjá Southampton þar sem hann berst við Romain Perraud um byrjunarliðssæti.
Us again, @ManCity... 😅
— Southampton FC (@SouthamptonFC) September 1, 2022
Hola, @juan_larios7 👋 pic.twitter.com/w0cgldOeTA
— Southampton FC (@SouthamptonFC) September 1, 2022
FOUR new faces 👋 pic.twitter.com/WemtoFlH9h
— Southampton FC (@SouthamptonFC) September 1, 2022






