Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. janúar 2023 17:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Watkins: Mig langaði að taka skotið
Mynd: Getty Images

Ollie Watkins lagði upp fyrra mark Aston Villa á Emiliano Buendia í 2-0 sigri liðsins gegn Tottenham í dag.


Watkins var á undan Hugo Lloris í boltann eftir að hann varði boltann út í teiginn en var kominn í of þröngt færi til að taka skotið svo hann ákvað að senda á Buendia sem skoraði.

„Ég íhugaði að taka skotið en þetta var þröngt færi, svo sá ég Emi (Emiliano Buendia) og hann kláraði færið," sagði Watkins í viðtali hjá Sky Sports.

Douglas Luiz skoraði síðara mark leiksins eftir frábæra sendingu frá John McGinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner