15.09.26 - 21:24
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Nýliðarnir komnir á skrið eftir erfiða byrjun

Lincoln er komið á skrið eftir að hafa byrjað tímabilið illa

Mynd: Lincoln City

Lincoln er komið á skrið eftir að hafa byrjað tímabilið illa

Mynd: Lincoln City
Nýliðar Lincoln City í ensku B-deildinni eru á miklu skriði en þeir unnu annan leik sinn í röð er liðið lagði Bristol City að velli, 1-0, á Ashton Gate í kvöld.
Lincoln byrjaði tímabilið illa og tapaði fyrstu tveimur leikjunum en hefur síðan rifið sig hressilega í gang.
Liðið vann nýliðaslaginn gegn Bolton 29. ágúst og gerði síðan jafntefli í næstu tveimur leikjum. Í síðustu umferð vann Lincoln Preston og hélt góðu skriði sínu áfram í kvöld með 1-0 sigri á Bristol City.
Freddie Draper skoraði eina mark leiksins á 53. mínútu og tryggði Lincoln stigin þrjú.
Lincoln er komið upp í 8. sæti með ellefu stig en Bristol City er í 13. sæti með tíu.
Middlesbrough átti á meðan frábæra endurkomu í 2-2 jafntefli gegn Millwall á Riverside-leikvanginum.
Tairyk Arconte og Lyndon Dykes komu Millwall í 2-0 forystu í fyrri hálfleik en Boro svaraði af krafti eftir hlé. Amario Cozier-Duberry og Will Lankshear skoruðu með ellefu mínútna millibili í upphafi síðari hálfleiks og jöfnuðu metin.
Middlesbrough er í 3. sæti með 14 stig en Millwall í 11. sæti með tíu.
Bristol City 0 - 1 Lincoln City
0-1 Freddie Draper ('53 )
Middlesbrough 2 - 2 Millwall
0-1 Tairyk Arconte ('11 )
0-2 Lyndon Dykes ('36 )
1-2 Amario Cozier-Duberry ('50 )
2-2 Will Lankshear ('61 )

Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Swansea | 8 | +7 | 17 |
| 2 | West Ham | 9 | +11 | 16 |
| 3 | Middlesbrough | 8 | +4 | 15 |
| 4 | Wolves | 7 | +5 | 14 |
| 5 | QPR | 9 | +3 | 14 |
| 6 | West Brom | 8 | +2 | 14 |
| 7 | Stoke City | 8 | +1 | 13 |
| 8 | Bristol City | 8 | -1 | 13 |
| 9 | Charlton Athletic | 8 | -3 | 12 |
| 10 | Birmingham | 8 | +1 | 11 |
| 11 | Millwall | 8 | 0 | 11 |
| 12 | Lincoln City | 8 | -1 | 11 |
| 13 | Southampton | 8 | +9 | 10 |
| 14 | Wrexham | 8 | -3 | 10 |
| 15 | Bolton | 8 | -4 | 10 |
| 16 | Blackburn | 8 | 0 | 9 |
| 17 | Norwich | 8 | -1 | 9 |
| 18 | Sheffield Utd | 8 | -2 | 9 |
| 19 | Portsmouth | 7 | -1 | 8 |
| 20 | Watford | 8 | -3 | 8 |
| 21 | Cardiff City | 8 | -2 | 7 |
| 22 | Derby County | 8 | -7 | 5 |
| 23 | Preston NE | 8 | -7 | 4 |
| 24 | Burnley | 8 | -8 | 4 |