Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   lau 01. febrúar 2020 14:28
Ívan Guðjón Baldursson
England: Antonio Rudiger bjargaði Chelsea
Leicester 2 - 2 Chelsea
0-1 Antonio Rüdiger ('46)
1-1 Harvey Barnes ('54)
2-1 Ben Chilwell ('64)
2-2 Antonio Rüdiger ('71)

Leicester tók á móti Chelsea í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Um mikilvæga viðureign var að ræða þar sem átta stig skilja liðin að í Meistaradeildarbaráttunni.

Staðan var markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik en gestirnir frá London komust yfir í upphafi seinni hálfleiks þegar Antonio Rüdiger skallaði hornspyrnu frá Mason Mount í netið.

Leicester skipti um gír eftir að hafa lent undir og var Harvey Barnes ekki lengi að jafna metin. Hann kom inn frá vinstri kantinum og lét vaða, skot hans fór af varnarmanni og í netið.

Á 64. mínútu komust heimamenn svo yfir með marki frá Ben Chilwell, sem skoraði eftir lága fyrirgjöf frá Youri Tielemans. Hægt er að setja spurningarmerki við úthlaup Willy Caballero í aðdraganda marksins.

Það leið þó ekki á löngu þar til Mount og Rüdiger tengdu aftur og jöfnuðu stöðuna í 2-2. Rüdiger reis þá hæst og skallaði aukaspyrnu frá Mount í netið.

Leicester setti gestina undir mikla pressu á lokakafla leiksins og vildu heimamenn fá vítaspyrnu í uppbótartíma þegar boltinn fór í hönd Rüdiger. VAR skoðaði atvikið og ákvað að dæma ekki vítaspyrnu.

Heimamönnum tókst ekki að gera sigurmark og niðurstaðan 2-2 jafntefli. Frank Lampard getur þakkað Rüdiger og Mount fyrir stigið.

Leicester er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 49 stig eftir 25 umferðir. Chelsea er í fjórða sæti með 41 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 54 41 +13 55
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 31 9 15 7 44 46 -2 42
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner
banner