Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 01. febrúar 2023 20:11
Brynjar Ingi Erluson
Þýski bikarinn: Bikarmeistararnir í 8-liða úrslit
Timo Werner tryggði sigur Leipzig
Timo Werner tryggði sigur Leipzig
Mynd: EPA
RB Leipzig 3 - 1 Hoffenheim
1-0 Emil Forsberg ('8 )
2-0 Konrad Laimer ('41 )
2-1 Kasper Dolberg ('77 )
3-1 Timo Werner ('84 )
Rautt spjald: Stanley Nsoki, Hoffenheim ('86)

Bikarmeistarar RB Leipzig eru komnir áfram í 8-liða úrslit þýska bikarsins eftir að hafa unnið Hoffenheim, 3-1, í kvöld.

Sænski landsliðsmaðurinn Emil Forsberg kom Leipzig í forystu á 8. mínútu áður en Konrad Laimer bætti við öðru undir lok fyrri hálfleiks.

Kasper Dolberg minnkaði muninn fyrir Hoffenheim þegar þrettán mínútur voru eftir af leiknum en sjö mínútum síðar tókst Timo Werner að gera út um leikinn með þriðja marki Leipzig.

Stanley Nsoki, varnarmaður Hoffenheim, fékk að líta rauða spjaldið á 86. mínútu leiksins. Lokatölur 3-1 og Leipzig komið áfram í 8-liða úrslit bikarsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner