23.09.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Mbappe: Svona er að vera keppnismanneskja

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kylian Mbappé, stórstjarna Real Madrid og franska landsliðsins, er í harðri baráttu um Ballon d'Or verðlaunin. Hann hefur svarað mikið af spurningum á síðustu dögum en talið er að hann sé aðallega í baráttu við Lamine Yamal um fyrsta sætið, þó að menn á borð við Harry Kane og Michael Olise komi einnig til greina ásamt Khvicha Kvaratskhelia og Ousmane Dembélé.

TENGT EFNI
Yamal: Allir vita að ég og Mbappe erum bestir
Mbappé vann ekki til neinna liðsverðlauna á síðustu leiktíð, hvorki með Real Madrid né franska landsliðinu, en endaði markahæstur í spænsku deildinni, Meistaradeildinni og á heimsmeistaramótinu.
„Ég átti frábært ár sem einstaklingur. Ég var markahæstur í öllum stærstu keppnunum og það hlýtur að telja fyrir Ballon d'Or. Ég verð vonsvikinn ef ég vinn ekki verðlaunin, en þannig er það vera keppnismanneskja. Okkur finnst ekki gaman að tapa," segir Mbappé.
„Ég gerði allt sem var í mínu valdi til að setja sjálfan mig í stöðu til að geta unnið Ballon d'Or. Þetta er ekki í mínum höndum, eina sem við getum gert er að bíða.
„Ef ég vinn þá ætla ég að helga fólkinu í Afríku þessi verðlaun, ég hef aldrei tapað tengingunni við rætur mínar og uppruna. Ég finn fyrir ástinni frá fólki í hvert skipti sem ég heimsæki álfuna, mér líður alltaf eins og ég sé elskaður þegar ég kem til Afríku."