Fotbolti.net
23.09.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Simeone ósáttur: Mourinho fór yfir strikið

Simeone ósáttur: Mourinho fór yfir strikið
Canon

Mynd: EPA

Diego Simeone þjálfari Atlético Madrid er alls ekki hrifinn af hegðun José Mourinho eftir Madrídarslaginn sem fór fram um helgina.
Ósáttur Mourinho prentaði út myndir og mætti með á fréttamannafund
TENGT EFNI

Ósáttur Mourinho prentaði út myndir og mætti með á fréttamannafund

Atlético vann 2-1 gegn Real Madrid eftir að Dean Huijsen fékk beint rautt spjald snemma í síðari hálfleik. Mourinho, leikmenn Real Madrid og félagið sjálft settu allt púður í að kenna dómaranum um tapið eftir leikinn.

„Það má ekki vanvirða dómarana. Það skiptir ekki máli hversu stórt nafn þú ert, þú verður að sýna virðingu. Mourinho er mjög stórt nafn í þessum fótboltaheimi, en hann verður að sætta sig við að stundum falla hlutirnir með manni og stundum ekki," segir Simeone.

„Maður ætti aldrei að fara yfir strikið, sama hver maður er. Hvort sem maður heitir Mourinho, Flick eða Pellegrini. Þetta á líka við um mig, það er mikilvægt að gæta orða sinna."

Atlético fer inn í landsleikjahléð í öðru sæti La Liga, með 16 stig eftir 7 umferðir. Real Madrid er með 15 stig.

„Við stjórnuðum þessum leik og nýttum færin þegar þau gáfust. Real Madrid, sem skapar vanalega mikið af færum, tókst ekki að skapa mikið gegn okkur."
Simeone ósáttur: Mourinho fór yfir strikið
Canon

Mynd: EPA

Simeone ósáttur: Mourinho fór yfir strikið
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona9+3027
2Atletico Madrid9+1122
3Real Madrid9+1421
4Betis9+219
5Real Sociedad9016
6Sevilla9-214
7Alaves9+311
8Celta9+311
9Deportivo9+111
10Osasuna9-811
11Athletic7+19
12Villarreal909
13Vallecano8-59
14Getafe9-69
15Espanyol9-18
16Racing Santander9-128
17Levante8-47
18Elche9-67
19Valencia9-96
20Malaga9-124
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.