Fotbolti.net
23.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Skráningarfrestur fyrir Íslandsmótið í Futsal

KM er ríkjandi Íslandsmeistari.

KM er ríkjandi Íslandsmeistari.

Canon

Mynd: KSÍ

KSÍ tilkynnir að skráningarfrestur til að skrá lið til leiks fyrir Íslandsmótið í Futsal rennur út 11. október.
Miðbær spilar sinn fyrsta leik í Jerevan
TENGT EFNI

Miðbær spilar sinn fyrsta leik í Jerevan

Íslandsmótið fer fram með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár þar sem forkeppnin verður leikin með hraðmótsfyrirkomulagi en úrslitakeppnin með fullum leiktíma.

Forkeppnin verður helst leikin á heimavöllum félaganna en úrslitaleikir fara fram í Virkinu, íþróttahúsi Víkings í Safamýri.

Forkeppnin verður leikin frá 14. nóvember til 21. desember og verður úrslitakeppnin svo haldin frá 8. til 10. janúar.

KSÍ skipar dómara á alla leiki keppninnar og eru allir leikmenn hlutgengir samkvæmt reglugerð KSÍ um félagaskipti leikmanna, þar sem leikmönnum er aðeins heimilt að leika með einu félagi í Íslandsmótinu í Futsal á hverju tímabili.

Leikmenn sem fá útgefið keppnisleyfi við upphaf félagaskiptagluggans í febrúar á næsta ári eru hlutgengir í úrslitakeppni Íslandsmótsins í Futsal.

Þátttökugjald vegna mótsins er 50.000 kr. og fær sigurvegarinn þátttökurétt í forkeppni fyrir Evrópukeppni félagsliða í Futsal.

Nánari upplýsingar veitir Guðni Þór Einarsson hjá KSÍ - [email protected].

Heimild: KSÍ

Spiluðu forkeppnina í Armeníu.

Spiluðu forkeppnina í Armeníu.

Canon

Mynd: Knattspyrnufélagið Miðbær

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.