22.09.26 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp tókst ekki að sannfæra Mbappé í þotuferð

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Franska stórstjarnan Kylian Mbappé var nálægt því að ganga í raðir Liverpool fyrir tæpum áratugi síðan eftir spjall sem hann átti við Jürgen Klopp í einkaþotu á flugi yfir Frakklandi.

TENGT EFNI
Mbappe: Vil koma Gullboltanum aftur á Bernabeu
Mbappé var 18 ára gamall á þeim tíma, sumarið 2017, og hafði átt mjög gott tímabil með AS Mónakó. Klopp reyndi að sannfæra hann um að flytja til Liverpool, en táningurinn kaus að lokum Paris Saint-Germain í staðinn.
„Ég var nálægt því að fara til Liverpool, mamma vildi að ég myndi skipta þangað. Hún var mjög hrifin af Jurgen Klopp og hún elskaði Liverpool og fólkið í borginni. Hún fór til Liverpool í samningaviðræður og var yfir sig hrifin. Hún fór ein á nokkra leiki til að finna fyrir andrúmsloftinu á Anfield, hún sagði oft við mig að Liverpool væri rétta félagið fyrir mig," sagði Mbappé í viðtali við The Athletic.
„Ég man að flugvélin flaug í hringi á meðan Klopp var að útskýra verkefnið sitt fyrir mér. Ég sagði við hann: 'Þú þarft ekki að sannfæra mig. Þú ert Jurgen Klopp og Liverpool er frábært félag. Ég er hérna útaf því að ég hef einhvern áhuga, en ég er líka með önnur tilboð á borðinu af mjög góðum verkefnum.'"
PSG keypti Mbappé að lokum fyrir um 200 milljónir evra og endaði hann á að skora 256 mörk í 308 leikjum fyrir félagið - auk þess að gefa 110 stoðsendingar.
„Að lokum ákvað ég að velja PSG útaf því að ég vildi spila í borginni minni, París. Ég vildi ekki yfirgefa landið mitt áður en ég var orðinn stórt nafn."
Hann vann frönsku deildina sex sinnum með PSG og tapaði úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2020, áður en hann skipti yfir til Real Madrid á frjálsri sölu sumarið 2024.