22.09.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fær 16 ára Dowman kallið í enska landsliðið?

Hefur skorað þrjú mörk og gefið eina stoðsendingu í 15 keppnisleikjum með Arsenal.

Mynd: EPA

Einhverjir fjölmiðlar á Englandi halda því fram að Max Dowman, 16 ára kantmaður Arsenal, gæti verið kallaður upp í enska landsliðshópinn til að fylla í skarð vegna meiðsla.

TENGT EFNI
Fimm draga sig úr enska landsliðinu
England spilar við Spán, Króatíu og tvisvar við Tékkland í þriggja vikna landsleikjahléi. Fimm leikmenn drógu sig úr hópnum eftir helgina og gætu fleiri bæst við ef ný meiðsli skjóta upp kollinum. Thomas Tuchel landsliðsþjálfari gæti því kallað upp menn í hópinn til að fylla í skörðin.
Þar kemur Dowman til greina til að fylla inn í eitt af skörðunum sem losnaði. Cole Palmer og Marcus Rashford eru meðal leikmanna sem drógu sig úr hópnum og hefur Morgan Gibbs-White verið kallaður upp í staðinn, en Tuchel vantar kantmann.
The Sun og Mirror eru meðal fjölmiðla sem fjalla um möguleika Dowman að komast í landsliðshópinn, þrátt fyrir að menn á borð við Noni Madueke, Harvey Barnes og Jarrod Bowen séu einnig utan hóps.
Dowman hefur ekki fengið mörg tækifæri með aðalliði Arsenal en var maður leiksins í síðustu viku, þegar Englandsmeistararnir heimsóttu Ipswich Town í deildabikarnum.