23.09.26 - 06:30
Elvar Geir Magnússon
Ummælin um Heimi óásættanleg segir forsætisráðherra Írlands

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands.

Mynd: EPA

Ísraelska sambandið sendi harðorða yfirlýsingu eftir ummæli Heimis.

Mynd: EPA

Meirihluti írsku þjóðarinnar vill sniðganga leikina.

„Ég tel þetta óásættanleg ummæli og að þau beri að draga til baka," segir Micheal Martin, forsætisráðherra Írlands, um ummæli ísraelska fótboltasambandsins sem sakaði Heimi Hallgrímsson um hræsni og heimsku.
Forsætisráðherrann stendur með Heimi, sem er landsliðsþjálfari Írlands, og segir hann einfaldlega hafa farið með rétt mál á umtöluðum fréttamannafundi.
Á sunnudaginn spilar Írland fyrri leik sinn gegn Ísrael í þessum landsleikjaglugga en fjölmargir á Írlandi kalla eftir því að Írland sniðgangi leikina vegna hernaðaraðgerða Ísraela á Gaza.

TENGT EFNI
Heimir á hitasvæði - Mótmælin magnast fyrir umdeildasta leik fótboltans
„Við erum ekki að spila með þjóðarmorði, við erum að spila gegn þjóðarmorði. Við erum að spila gegn Ísrael, við erum ekki að spila með Ísrael,“ sagði Heimir á dögunum en ísraelska sambandið sendi harðorða yfirlýsingu frá sér í kjölfarið á samfélagsmiðlum.
„Því miður höfum við ekki enn fundið lækningu við heimsku, fáfræði og hræsni sem þjálfari Írlands sýnir," sagði meðal annars í yfirlýsingu Ísraela. Rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna komst að þeirri niðurstöðu á síðasta ári að stríð Ísraels á Gaza sé þjóðarmorð. Ísrael hefur hinsvegar ítrekað hafnað ásökunum um þjóðarmorð.
Stendur með Heimi
Martin, forsætisráðherra Írlands, var spurður út í ummæli ísraelska sambandsins í gær þegar hann ræddi við fjölmiðla í New York þar sem hann sækir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna.
„Antonio Guterres (aðalritari Sameinuðu þjóðanna) sagðist aldrei á ævi sinni hafa séð jafnmikinn dauða og eyðileggingu og þá sem hann varð vitni að í stríði ísraelsku ríkisstjórnarinnar á Gaza. Landsliðsþjálfarinn okkar tekur í sama streng. Ísrael getur ekki haldið áfram að neita fyrir það sem sem heimurinn veit og skilur," sagði Martin.
Fleiri stjórnmálamenn á Írlandi hafa tekið upp hanskann fyrir Heimi. Ged Nash, þingmaður Verkamannaflokksins, er þar á meðal og segir að Írar og þjálfari þeirra muni ekki sætta sig við svona ummæli frá ísraelska fótboltasambandinu.
Leikmenn settir í ómögulega stöðu
Ray Houghton, fyrrum landsliðsmaður Írlands, gagnrýnir hinsvegar ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki brugðist fastar og fyrr við þegar yfirlýsingin kom frá Ísrael. Ráðherrarnir Patrick O’Donovan og Charlie McConalogue, sem fara með íþróttamál, hafa báðir sagt að írska landsliðið eigi ekki að sniðganga komandi leiki.
„Þeir hefðu átt að taka þungann af þessu en í staðinn lendir þetta á leikmönnum. Þeim er vorkunn því ég tel að margir af þeim, jafnvel þeir allir, vilji ekki spila þessa leiki. Þeir fá gagnrýni ef þeir spila og gagnrýni ef þeir spila ekki. Þeir eiga ekkert val og þurfa að halda áfram sinni vinnu," segir Houghton.
Báðir leikir Írlands og Ísraels verða spilaðir á hlutlausum völlum, í Ungverjalandi og Serbíu. Engir miðar verða seldir til írskra stuðningsmanna og samkvæmt könnunum telur stór meirihluti Íra að sniðganga eigi leikina.
„Leikirnir verða á hlutlausum völlum í öðrum löndum, það verða engir írskir stuðningsmenn og þetta eru leikir sem enginn vill í raun og veru. Það er ljóst að meirihluti almennings á Írlandi vill ekki þessa leiki," segir Houghton.
Forsætisráðherra Írlands svarar spurningum um ummæli Heimis:

Taoiseach Micheál Martin has said remarks by the Israeli FA about Ireland manager Heimir Hallgrímsson are “unacceptable” and should be withdrawn.
— Virgin Media News (@VirginMediaNews) September 22, 2026
The Israeli FA accused Hallgrímsson of “stupidity, ignorance and hypocrisy” over comments he made about the upcoming fixture.
The… pic.twitter.com/G5NHYpF7ni