23.09.26 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
Heimir: Ekki snjallt að draga athyglina að mér

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Írland spilar sinn fyrsta leik í Þjóðadeildinni á morgun, gegn Kósovó. Leikurinn gegn Ísrael hefur þó algjörlega stolið sviðsljósinu eða kannski frekar sú staðreynd að Írland sé að fara að spila gegn Ísrael.
Ummæli Heimis Hallgrímssonar, landsliðsþjálfara Írlands, á fréttamannafundi nýlega reittu ísraelska fótboltasambandið til reiði en þar sagði hann Íra vera að fara að spila 'gegn þjóðarmorði'.
Heimir var á fréttamannafundi í morgun og sagði að það hefði líklega ekki verið sniðugt hjá sér að draga athyglina svona frá leiknum gegn Kósovó og að sér.

TENGT EFNI
Ummælin um Heimi óásættanleg segir forsætisráðherra Írlands
„Auðvitað erum við þakklát fyrir þann stuðning sem við erum að fá. Það sem ég sagði í síðustu viku hefur dregið athyglina frá því sem kannski skiptir mestu máli, við erum að fara að spila mikilvægan leik gegn Kósóvó," segir Heimir.
„Kannski var það ekki snjallt af mér að taka athyglina svona. Við þurfum að einbeita okkur að leiknum. En til að svara spurningunni erum við þakklát fyrir allan þann stuðning sem við fáum. Þetta er erfiður tími."